Æskulýðsgáttin

æska.is

Æskulýðsráð

Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn æskulýðsmála samkvæmt æskulýðslögum. Ráðherra skipar níu fulltrúa í Æskulýðsráð. Fimm fulltrúar skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu æskulýðssamtaka, samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð. Tveir fulltrúar skulu tilnefndir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ráðherra skipar formann og varaformann Æskulýðsráðs án tilnefningar. Skipunartími ráðsins er tvö ár.

Hlutverk Æskulýðsráðs er:
   1. Að vera stjórnvöldum til ráðgjafar í æskulýðsmálum.
   
2. Að gera tillögur um áherslur og stefnumótun í málaflokknum.
   
3. Að veita umsagnir um mál er varða æskulýðsstarfsemi.
   
4. Að leitast við að efla æskulýðsstarfsemi félaga, félagasamtaka, skóla og sveitarfélaga og stuðla að samvinnu þessara aðila um æskulýðsmál.
   
5. Að efna til funda og ráðstefna um æskulýðsmál.
   
6. Að taka þátt í erlendu samstarfi um æskulýðsmál eftir nánari ákvörðun ráðherra.
   
7. Að stuðla að þjálfun og menntun forustufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
   
8. Að sinna öðrum þeim verkefnum sem ráðherra kann að fela því.

Nánari umfjöllun er í æskulýðslögum nr.70/2007 og á heimasíðu Menntamálaráðuneytis.

Síðast var skipað í Æskulýðsráð í byrjun árs 2009 og skipa eftirfarandi ráðið:

  • Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður til 25. maí 2009.
  • Óskar Dýrmundur Ólafsson, formaður frá 1. júlí 2009.
  • Steinunn Guðnadóttir, varaformaður.
  • Aðalsteinn Þorvaldsson.
  • Anna Guðný Hallgrímsdóttir.
  • Ásdís Helga Bjarnadóttir.
  • Ástríður Jónsdóttir.
  • Margrét Sigurðardóttir.
  • Sindri Snær Einarsson.
  • Stefán Elías Bjarkason.

Öllum er frjálst að hafa samband við Æskulýðsráð. Hægt er að senda tölvupóst á formann ráðsins á odo4[at]hi.is

Æskulýðssjóður

Hjá Menntamálaráðuneyti er til staðar æskulýðssjóður sem ætlaður er til úthlutnar vegna ýmissa verkefna æskulýðssamtaka. Formaður Æskulýðsráðs er jafnframt formaður Æskulýðssjóð. Úthlutað er úr sjóðnum að jafnaði fjórum sinnum á ári og eru umsóknarfrestir auglýstir sérstaklega. LÆF tilkynnir einnig aðildarfélögum sínum um umsóknarfresti í póstlista og í viðburðardagatalinu á forsíðu Æskulýðsgáttarinnar.

Í stjórn Æskulýðssjóðs sitja:

Óskar Dýrmundur Ólafsson, formaður
Bragi Björnsson
Sigþrúður Ármann
Gabríella Unnur Kristjánsdóttir, varamaður

Nánar um starfsemi og hlutverk sjóðsins auk úthlutanna úr honum má lesa hér.

Auglýsingar

Menntamálaráðuneytið
Evrópa unga fólksins
European Youth Forum
Ár unga fólsins
Evrópska ungmennagáttin
Vinanet
Kompás

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn