Evrópski æskulýðsvettvangurinn

"European Youth Forum" (YFJ) eða Evrópski æskulýðsvettvangurinn er sjálfstætt starfandi eining sem samanstendur af æskulýðsfélögum í Evrópu, og er þannig uppbyggt að aðildarfélögum er skipt upp í tvær fylkingar. Önnur fylkingin samanstendur af Landssamtökum æskulýðsfélaga, eða "National Youth Councils" (NYC) og Alþjóðlegum frjálsum félagasamtökum eða "International non-governmental Organizations" (INGO). Landssamband æskulýðsfélaga á aðild að fyrrnefndri fylkingu, og er fullgildur meðlimur Evrópska æskulýðsvettvangsins.
Árið 1996 runnu saman tvö félög í eitt. Félögin sem runnu saman hétu "Council of European National Youth committees" (CENYC) og "The European Co-ordination Bureau of International Non-Governmental Youth Organisations" (ECB) en þessi tvö félög áttu rætur að rekja allt aftur til sjöunda áratugsins. Varð til við þennan samruna þessi eining sem við þekkjum í dag sem fyrrnefnt "YFJ". "YFJ" starfar í nánu samstarfi við Æskulýðsvettvang Evrópusambandsins (Youth Forum of the European Union, YFEU) sem þjónar sem brú milli "YFJ" og hinna ýmsu stofnanna Evrópusambandsins.
Stefna "YFJ" er að stuðla að þátttöku ungs fólks í mótun Evrópu og samfélagi því er það býr í auk þess að bæta lífsskilyrði þessa sama hóps.
Stefnu "YFJ" er framfylgt með eftirfarandi markmiðum:
- Að auka þátttöku ungs fólks og æskulýðsfélaga í samfélaginu, sem og ákvarðanatöku innan samfélagsins.
- Að hafa jákvæð áhrif á stefnumál sem snerta ungt fólk og æskulýðssamtök með því að vera viðurkenndur samstarfsaðili alþjóðlegra stofnanna, svo sem Evrópusambandsins, Evrópuráðsins og Sameinuðu þjóðanna.
- Með því að kynna hugmyndafræði varðandi æskulýðsstefnu og æskulýðslög sem þverfaglegt samstarf fyrir stjórnvöldum
- Með því að hvetja til og stuðla að þróun og starfsemi sjálfstæðra æskulýðsfélaga sem starfa á staðbundnum og alþjóðlegum grundvelli
- Ýta undir samstarf með hugmyndir og reynslu, gangkvæman skilning og jafnan rétt og tækifæri fyrir ungt fólk í Evrópu, burtséð frá trúarbrögðum, kynhneigð eða litarhætti.
- Með því að horfa út fyrir Evrópu með þróunarstarf og aðstoð við uppbyggingu í æskulýðsstarfi í ljósi þess að YFJ er einn stærstu vettvangur æskulýðsmála í heiminum í dag.
Starf "YFJ" er opið fyrir meðlimi samtakanna þar sem aðal áherslan er lögð á koma áherslum, áhyggjum og áhuga á framfæri við þær evrópsku stofnanir sem "YFJ" er í reglulegu sambandi við. "YFJ" býður æskulýðsfélögum grundvöll og vettvang til þess að vaxa, dafna og þróa með sér áræðinleika og sjálfstæði með það að markmiði að byggja upp sterka og samhæfða evrópska æsku. "YFJ" er grundvöllur lýðræðislegrar umræðu um stefnur, skoðanir og markmið meðlima og miðlar þannig reynslu og þekkingar ungs fólks um alla Evrópu.
"YFJ" starfar að ýmsum málefnum sem eru betur skilgreind af meðlimum samtakanna í daglegu starfi og á fundum sem haldnir eru tvisvar á ári.





