Æskulýðsgáttin

æska.is

Nordbuk

Norræna ráðherranefndin rekur styrktarkerfi til handa æskulýðsfélögum á Norðulöndum undir heitinu NORDBUK. Tilangur styrkjanna er að efla norræna vitund með því að hvetja til þátttöku barna og unglinga í starfi sem tengist menningu, stjórnmálum og þjóðfélagsmálum á Norðurlöndum. Styrkir eru veittir til samtaka og hópa barna og ungmenna en ekki eru veittir styrkir til skóla, íþróttasamtaka eða fagfélaga. Til að geta sótt um styrk þarf að vera samstarf milli að minnsta kosti þriggja af Norðurlöndunum fimm og sjálfstjórnarsvæðanna þriggja. Þó þurfa samstarfsaðilar aðeins að vera tveir ef einn af samstarfsðilunum er frá Álandseyjum, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Austur-Finnlandi eða Norðurkollu. Auk þess má hafa þátttakendur frá Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Norðvestur Rússlandi.

Nordbuk styrkjunum er skipti í tvennt, verkefnastyrki og styrki til samtaka. Umsóknarfrestur vegna verkefnastyrkja eru fjórum sinnum á ári 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember. Umsóknarfrestur vegna styrkja til samtaka er einu sinni á ári þann 1. október. Allar nánari upplýsingar um styrkina, gerð umsókna, kröfur um starfstarf og fleira er að finna vegna verkefnastyrkja hér en vegna styrkja til samtaka hér. Hér er einnig að finna bækling um Nordbuk styrkina á íslensku.

Vakin er athygli á því að mun meira efni er inn á síðunni um Nordbuk styrki en finnst á íslensku í linkunum hér að framan. Upplýsingarnar eru á dönsku eða ensku. Vakni upp spurningar vegna umsókna um styrki frá Nordbuk er best að hafa samband við Andreas Bruun á netfanginu anbr(hjá)iu.dk. Hann talar ensku og þarf því enginn að hafa áhyggjur af slakri kunnáttu í Norðulandamáli.

Auglýsingar

Menntamálaráðuneytið
Evrópa unga fólksins
European Youth Forum
Ár unga fólsins
Evrópska ungmennagáttin
Vinanet
Kompás

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn