Ćskulýđsgáttin

æska.is

Peningatré

Nýjustu fréttir

Okkar ár - okkar rödd


Í dag er alþjóðlegur dagur ungs fólks haldin hátíðlegur víða um heim. Það eru Sameinuðu þjóðirnar sem standa fyrir deginum en hann er ætlaður til að vekja athygli á málefnum ungs fólks í heiminum og hlutverki þeirra í samfélögum okkar. Í dag er þó ekki eingöngu haldið upp á daginn heldur er hann upphaf alþjóðlegs árs ungs fólks sem mun standa yfir til 12. ágúst 2011. 

Slagorð ársins er Okkar ár- okkar rödd og er markmið þess að veita þátttöku ungs fólks, í héraði, á landsvísu og á alþjóðavísu löngu þarfa athygli og leggja áherslu á að ungt fólk fá tækifæri til þátttöku í samfélaginu hvort sem er heima í héraði eða á alþjóðavísu. Í ályktun alsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlegt ár ungs fólks kemur fram að mikilvægt sé að hvetja ungt fólk til þátttöku í efnahagslegri, félagslegri og menningar þróun og eflingu sameiginleg skilnings milli manna á heiminum. Þetta kristallast í orðum framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, að gefa eigi ungu fólki virkt hlutverk í ákvörðunartökum á öllum stigum. 

Lesa meira

Námskeiđ um skilvirkt hópastarf


LÆF stendur fyrir námskeiði um skilvirkt hópastarf miðvikudaginn 1.sept n.k. milli kl. 17:00 og 21:00. Markmið námskeiðins er að auka færni þátttakenda í stýra skilvirku hópastarfi og þjálfa þátttakendur í notkun nokkura aðferða sem styðja við skilvirkt hópastarf. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem stýra einhverslags hópastarfi, t.d. verkefna- eða hópstjórum, formönnum og starfsmönnum en er eins og ávallt opið öllum áhugasömum.
Lesa meira

Sumarlokun skrifstofu

Skrifstofa félagsins verður lokuð frá og með hádegi miðvudaginn 30. júni til 3. ágúst vegna sumarleyfa starfsmanns. 

LÆF óskar öllum gleðilegs og gæfuríkssumars!

Ađildafélög LĆF kynnt: FSHA


FSHA stendur fyrir Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri. Megin hlutverk félagsins er að gæta hagsmuna stúdenta við Háskólann á Akureyri bæði innan skóla og utan. Allt til ársins 2009 snérist starfsemi meira um félagslíf stútenda fremur en hagsmunagæslu. Á aðalfundi félagsins árið 2009 voru hins vegar gerðar viðamiklar breytingar á starfsemi félagsins og félagið varð hagsmunafélag fremur en skemmtifélag. Hin ýmsu nemendafélög sem starfa innan skólans sjá nú um félagslíf stúdenta.  Lesa meira

LĆF auglýsir eftir framkvćmdastjóra


Landssamband æskulýðsfélaga (LÆF) auglýsir eftir framkvæmdastjóra. LÆF er regnhlífasamtök fyrir æskulýðsfélög á Íslandi með 23 aðildarfélög. Megin hlutverk félagsins er að standa vörð um hagi ungs fólks og æskulýðssamtaka. Leitað er eftir ungum og mjög hæfum einstaklingi í starfið. Framkvæmdastjóri er eini starfsmaður félagsins og er starfshlutfallið 60%.

Lesa meira

Sambandsţing 2010


Þann 18. maí s.l. hélt LÆF árlegt sambandsþing sitt. Þingið var nokkuð vel sótt en 19 fulltrúar frá 11 félögum voru viðstödd. Megin umræðuefni þingsins var að samþykkja stefnu félagsins auk þess að ræða um skilgreiningu á æskulýðsfélögum. Góð umræða fór fram um þessi málefni. Einnig var kosið til stjórnar. Fimm fulltrúar buðu sig fram í 7 embætti. Formaður, varaformaður og gjaldkeri voru endurkjörin og tveir nýjir fulltrúar þau Björn Guðmundsson og Steinunn Kristjánsdóttir voru kjörin í stjórn, Björn sem alþjóðafulltrúi og Steinunn sem varamaður. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin í stjórn félagsins.  Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn