Ćskulýđsgáttin

æska.is

Fréttir

Ađildafélög LĆF kynnt: FSHA

FSHA stendur fyrir Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri. Megin hlutverk félagsins er að gæta hagsmuna stúdenta við Háskólann á Akureyri bæði innan skóla og utan. Allt til ársins 2009 snérist starfsemi meira um félagslíf stútenda fremur en hagsmunagæslu. Á aðalfundi félagsins árið 2009 voru hins vegar gerðar viðamiklar breytingar á starfsemi félagsins og félagið varð hagsmunafélag fremur en skemmtifélag. Hin ýmsu nemendafélög sem starfa innan skólans sjá nú um félagslíf stúdenta.  Í félaginu er starfandi stjórn en einnig starfa í félaginu þrjár lögbundnar nefndir, alþjóðanefnd, hagsmunanefnd og skemmtinefnd. Við Háskólan á Akureyri starfa sjö nemendafélög sem hvert um sig er félag ákveðinna hópa námsmanna. Félögin sjö kallast deildarfélög og eiga öll aðild að FSHA. 

FSHA heldur úti öflugri heimasíðu þar sem hægt er að lesa sig til um starfsemi félagsins sem og starfsemi deildarfélaganna sjö. Endilega kíkið á vefinn www.fsha.is. 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn