Æskulýðsgáttin
miðvikudagur 06.júlí 2011
Markmið æskulýðsgáttarinnar (www.aeska.is - þessi heimasíða) er að varpa ljósi á æskulýðsstarf á Íslandi.
Hér birtast fréttir frá Landssambandi æskulýðsfélaga sem eru regnhlífasamtök 20 aðildarfélaga sem öll hafa það
sameiginlegt að vinna að æskulýðsmálum. Þá er ætlunin að hingað geti aðildarfélögin sem og annað áhugafólk
um æskulýðsstarf leitað upplýsinga og komið á framfæri fréttum varðandi málaflokkinn.
Nú leitar LÆF til ykkar allra svo þessi heimasíða geti virkað sem skyldi. Endilega sendið erindi, fyrirspurnir, fréttir, myndir, ljóð,
kvikmyndir eða annað sýnilegt frá ykkar starfi á youth@youth.is og við birtum það hér á æskulýðsgáttinni. Einnig
væri gaman að fá ábendingar um hvað megi betur fara eða möguleg umfjöllunarefni. Vonandi getum við saman haldið úti skemmtilegri,
fræðandi og frábærri gátt!





