Breytingar í vændum á umsóknarferli Evrópu unga fólksins
mánudagur 18.júlí 2011
Nokkrar breytingar verða gerðar á umsóknarferlinu hjá Evrópu unga fólksins á næstu mánuðum. Árið 2012 verða aðeins 3 umsóknarfrestir í stað 5. Ekki hefur verið staðfest nákvæmlega hvaða dagsetningar það verða en víst er að þær munu dreifast um árið. Upplýsingar um nýja umsóknarfresti munu verða birtar á heimasíðu Evrópu unga fólksins um leið þær berast. Þá hefur verið ákveðið að bjóða uppá rafræn umsóknareyðublöð frá og með umsóknarfresti 1. nóvember. Upplýsingar um notkun þeirra verða birtar þegar nær dregur. Það eru því spennandi tímar framundan sem vonandi munu gera umsóknarferlið einfaldara og þægilegra fyrir alla.





