Enginn titill
föstudagur 14.október 2011

Stjórn SUF samþykkti eftirfarandi ályktun á nýliðnum fundi sínum.
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna áréttar fyrri ályktanir um mikilvægi þess að lækka skatt á smokkum úr 25,5%
í 7%. Það er ein þeirra leiða sem eru færar til að gera smokka ódýrari, eins og sóttvarnaráð hefur kallað eftir.
Á síðasta ári greindust 24 einstaklingar hér á landi með HIV, fleiri en nokkru sinni áður. Tíðni leghálskrabbameins
hefur einnig aukist, sem orsakast meðal annars af HPV veirusmitum.
Klamedíusmitum hefur einnig fjölgað. Fólk sem hefur ekki efni á smokkum hættir ekki að stunda kynlíf, það hættir að stunda
varið kynlíf.
SUF er meðal elstu grasrótarsamtaka ungs fólks á Íslandi. Það samanstendur af 20 aðildarfélögum (FUF) víðast hvar um
landið auk félagsmanna í almennum framsóknarfélögum á aldrinum 16-35 ára.
Nánari upplýsingar gefur Ásta Hlín Magnúsdóttir, starfandi formaður SUF í síma 846-6218 eða í tölvupósti
á astahlin@suf.is.





