Forvarnarsjóður
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki til forvarnarverkefna úr Forvarnarsjóði Reykjavíkur. Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einstökum hverfum eða almennt í borginni. Hverfisráð veita styrki til verkefna í hverfum, en velferðarráð til almennra verkefna í borginni að fenginni umsögn samráðshóps um forvarnir. Upplýsingar um úthlutunarreglur, umsóknareyðublöð og tengiliði er að finna á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/forvarnarsjodur. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að forvörnum og styrkja félagsauð í hverfum Reykjavíkur. Styrkir úr sjóðnum verða veittir til verkefna sem styðja:
- Forvarnir í þágu barna og unglinga.
- Eflingu félagsauðs í hverfum borgarinnar.
- Bætta lýðheilsu.
- Markvisst samstarf íbúa, félagasamtaka, fyrirtækja og borgarstofnana í þágu forvarna og félagsauðs.
- Önnur verkefni sem mæta þeim markmiðum sem borgarstjórn setur hverju sinni.
Verkefnin gefa einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum tækifæri til að vinna að forvörnum í borginni.
Til úthlutunar úr Forvarnarsjóðnum að þessu sinni koma alls 10 milljónir króna. Umsóknum skal skilað á vef Reykjavíkurborgar eigi síðar en 16. september 2011.





