Fulltrúaráðsfundur 5.október.2011
föstudagur 23.september 2011
Miðvikudaginn 5.október.2011 mun LÆF halda fyrsta Fulltrúaráðsfund starfsársins. Fundurinn fer fram í fundarherbergi Hins Húsins kl 17.30.
Fulltrúaráð fer með æðsta vald félagsins milli sambandsþinga. Í Fulltrúaráði sitja fulltrúar frá öllum aðildarfélögum LÆF en á fundum ráðsins er yfirleitt farið yfir þau mál sem félagið vinnur að hverju sinni. Dagskrá fundarins er á þessa leið:
a. Alþjóðamál – Stefán Rafn Sigurbjörnsson
b. Stefna í æskulýðsmálum- Auður Geirsdóttir
c. Laganefnd LÆF- Unnur Hjálmarsdóttir
d. Næstu námskeið félagsins- Kristín Tómasdóttir
Þau aðildarfélög sem eiga enn eftir að tilnefna fulltrúa í Fulltrúaráð eru beðin um að gera það sem allra fyrst á netfangið youth@youth.is.





