Fundur með starfsfólki aðildarfélaga LÆF
þriðjudagur 30.ágúst 2011
Síðast liðið vor hélt LÆF hádegisfund með starfsfólki aðildarfélaga sinna. Fundurinn var ágætlega sóttur og
fundarmenn-/konur voru sammála um að þróa þennan vettvang betur. Af þeim sökum boðar LÆF nýjan hádegisfund kl 12.00 í
fundarherbergi Hins Húsins fimmtudaginn 8. september nk. Rætt verður um verkefni félaganna framundan, mögulega samstarfsfleti og aðkomu LÆF að
þeim.
Fundarstjóri verður Kristín Tómasdóttir, framkvæmdarstýra LÆF.





