Hádegisfundur með starfsfólki aðildarfélaga LÆF
mánudagur 18.apríl 2011
Fimmtudaginn 28.april kl 12.00 mun LÆF standa fyrir
hádegisfundi sem ætlaður er starfsfólki þeirra æskulýðsfélaga sem eiga aðild að LÆF. Kristín Tómasdótir,
framkvæmdarstjóri LÆF, mun stjórna opnum umræðum sem tengjast sameiginlegum þáttum í starfi starfsmanna æskulýðssamtaka.
Þá verður rætt um mögulegan samstarfsvettvang og hvernig LÆF getur komið betur að stuðningi við starfsmenn aðildarfélaga sinna.
Skráning fer fram á youth@youth.is en fundurinn er þátttakendum að
kostnaðarlausu. Boðið verður uppá kaffi og kleinur!





