LÆF auglýsir eftir framkvæmdarstjóra
Landssamband æskulýðsfélaga (LÆF) leitar að framkvæmdarstjóra. LÆF er regnhlífasamtök fyrir æskulýðsfélög á Íslandi með 22 aðdildarfélög.
Megin hlutverk félagsins er að standa vörð um hagi ungs fólks og æskulýðssamtaka. Leitað er eftir ungum og hæfum einstaklingi í starfið. Framkvæmdarstjóri er eini starfsmaður félagsins og er starfshlutfallið 60%.
Starfssvið
- Umsjón með daglegum rekstri, heimasíðu og fjármálum félagsins.
- Samskipti við aðildarfélög, stjórnvöld og erlenda samstarfsaðila.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Góð færni í íslensku og ensku, önnur tungumálakunnátta er kostur.
- Þekking á íslensku stjórnkerfi og Evrópusamstarfi er æskileg.
- Reynsla af sjálfboðnu starfi æskileg.
- Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni skilyrði.
Við leitum eftir einstaklingi sem á gott með að vinna sjálfstætt, getur tjáð sig vel í ræðu og riti, hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri í starfi. Góðir samskiptahæfileikar eru skilyrði. Reynsla af stjórnun og rekstri félagasamtaka er æskileg. Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 24.október.2011. Umsóknum ásamt ferilskrá með mynd skal sendast til Landssambands æskulýðsfélaga, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík eða á netfangið youth@youth.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Tómasdóttir í síma 561-1100.





