Æskulýðsgáttin

æska.is

Fréttir

LÆF auglýsir eftir framkvæmdastjóra

Landssamband æskulýðsfélaga (LÆF) auglýsir eftir framkvæmdastjóra. LÆF er regnhlífasamtök fyrir æskulýðsfélög á Íslandi með 23 aðildarfélög. Megin hlutverk félagsins er að standa vörð um hagi ungs fólks og æskulýðssamtaka. Leitað er eftir ungum og mjög hæfum einstaklingi í starfið. Framkvæmdastjóri er eini starfsmaður félagsins og er starfshlutfallið 60%.

Starfssvið
Umsjón með daglegum rekstri, heimasíðu og fjármálum félagsins. 
Samskipti við aðildarfélög, stjórnvöld og erlenda samstarfsaðila. 

Hæfniskröfur

· Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

· Góð færni í íslensku og ensku, önnur tungumálakunnátta er kostur.

· Þekking á íslensku stjórnkerfi og Evrópusamstarfi er æskileg.

· Reynsla af sjálfboðnu starfi æskileg.

· Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni skilyrði.

Við leitum eftir einstaklingi sem á gott með að vinna sjálfstætt, getur tjáð sig vel í ræðu og riti, hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri í starfi. Reynsla af stjórnun og rekstri félagasamtaka er æskileg. Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Umsóknafrestur er til og með 13. júní. Umsóknum ásamt ferilskrá með mynd skal sendast til Landssambands æskulýðsfélaga, Pósthússtræti 3-5 101 Reykjavík eða á netfangið youth@youth.is.

Allar nánari upplýsingar veitir Hildur Tryggvadóttir Flóvenz í síma 561 1100. 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn