LÆF fagnar þingsályktunartillögu menntamálanefndar
Landssamband æskulýðsfélaga (LÆF) fagnar þingsályktunartillögu sem menntamálanefnd Alþingis hefur nú lagt fyrir Alþingi um að gerð verði heildarúttekt á starfsemi æskulýðs- og ungmennasamtaka á Íslandi.
LÆF telur að slík úttekt sé nauðsynleg svo fjármunum ríkisins til málaflokksins sé varið á þá vegu að sem flest ungmenni í landinu njóti góðs af. LÆF fagnar því sérstaklega að í úttektinni eigi að skoða hve miklu fjármagni er varið í stjórnunar- og rekstarkostnað og hve mikið fjármagn fer til verkefna. LÆF leggur áherslu á að það er jafn mikilvægt fyrir æskulýðsfélög að geta sótt um styrki til rekstrar- og stjórnunarkostnaðar til jafns við styrki til verkefna.
LÆF fagnar einnig hugmyndum menntamálaráðherra um að gerð verði heildarstefna í æskulýðsmálum. Það er álit LÆF að slík heildarstefna sé öllu æskulýðsstarfi og ungu fólki á Íslandi til bóta og leggur ríka áherslu á að ungt fólk verði haft með í ráðum við gerð stefnu að því tagi.
Það er álit LÆF að úttekt af þessu tagi og setning á heildarstefnur í málefnum ungs fólks og æskulýðsstarfs á Íslandi geti eingöngu stuðlað að enn betra æskulýðsstarfi í landinu.
Landssamband æskulýðsfélaga lýsir yfir eindregnum samstarfsvilja og stuðningi við þingsálytkinartillöguna.
Tillöguna má nálgast í heild sinni hér: http://www.althingi.is/altext/139/s/pdf/0810.pdf





