Listahátíð Stúdentaráðs HÍ
miðvikudagur 13.júlí 2011
Þekkir
þú hæfileikaríkan stúdent? Vilt þú sjálf/ur taka þátt í listahátíð stúdenta?Stúdentaráð Háskóla Íslands stendur fyrir listhátíð í septembermánuði.
Hátíðin er haldin í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands.
Á hverjum degi septembermánaðar verða mismunandi listviðburðir á víð og
dreif um háskólalóðina. Söngur, myndlist, dans, tíska, ljóðlestur - því
fjölbreyttara, því betra!
Ef þú hefur sjálf/ur áhuga á að taka þátt eða vilt benda á aðra efnilega
listamenn sem snjallt væri að hafa samband við sendu þá línu á shi@hi.iseða hafðu samband í síma 570-0852.





