Æskulýðsgáttin

æska.is

Fréttir

Námskeið í samfélagsmiðlun

 

Ef facebook væri land þá væri það þrijða stærsta land í heimi. Fyrir mörgum er facebook internetið og þar af leiðandi flykkjast fyrirtæki og samtök þangað með sína þjónustu. Það eru þó aðrar leikreglur sem gilda á samfélagsmiðlum en statískum heimasíðum.

Á þessu námskeiði verður farið yfir helstu atriði í samfélagsmiðlun. Allt frá því hvernig stefna er mörkuð, uppsetning, daglegt viðhald, mælingar og eftirfylgni.

Mestum tíma verður varið á facebook en einnig verður staldrað við á Twitter, YouTube, Flickr, LinkedIn, Foursquare og fleiri þjónustum.

 

Kennari á námskeiðinu er Finnur Pálmi Magnússon (@Gommit) sem hefur sinnt ráðgjöf í samfélagsmiðlun síðastliðin 4 ár á Íslandi og í Bretlandi. Hann er stofnandi facebook síðunnar Íslensk Samfélagsmiðlun. Námskeiðið fer fram í fundarherbergi HinsHússins kl 17.30 fimmtudaginn 24.febrúar.2011. Námskeiðið er ókeypis fyrir aðildarfélög LÆF og skráning fer fram á youth@youth.is .

 




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn