Námskeið um skilvirkt hópastarf
mánudagur 09.ágúst 2010

LÆF stendur fyrir námskeiði um skilvirkt hópastarf miðvikudaginn 1.sept n.k. milli kl. 17:00 og 21:00. Markmið námskeiðins er að auka færni
þátttakenda í stýra skilvirku hópastarfi og þjálfa þátttakendur í notkun nokkura aðferða sem styðja við skilvirkt
hópastarf. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem stýra einhverslags hópastarfi, t.d. verkefna- eða hópstjórum, formönnum
og starfsmönnum en er eins og ávallt opið öllum áhugasömum.
Að vanda er námskeiðið aðildarfélögum LÆF að kostnaðarlausu en verð fyrir félaga úr öðrum félögum er 2500kr.
Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Arndís Ósk Jónsdóttir.Þetta verður án efa skemmtilegt og fróðlegt námskeið og við hvetjum sem flesta til að taka þátt. Nauðsynlegt er að skrá sig á youth@youth.is eða í síma 561 1100. Taka þarf fram nafn, félag, netfang og símanúmer.





