Námskeið um undirbúning fyrir atvinnuleit
mánudagur 05.september 2011
Fimmtudaginn 15.september 2011 og þriðjudaginn 20.september 2011 stendur Landssamband æskulýðsfélaga fyrir námskeiði um undirbúning fyrir
atvinnuleit. Námskeiðið felur í sér ítarlega kennslu um gerð kynningabréfs og ferilskrá ásamt góðum ráðum sem gott
er að hafa bak við eyrað þegar leitað er að vinnu. Á seinni hluta námskeiðsins gefst þátttakendum kostur á að koma með uppkast
að sínu eigin kynningarbréfi og ferilskrá til þess að fá leiðsögn um hvernig megi breyta og bæta.
Kennari á námskeiðinu verður Björt Ólafsdóttir M.sc í mannauðsstjórnun og stjórnunarráðgjafi.
Námskeiðið verður haldið í Hinu Húsinu:
Fimmtudaginn 15.september kl 17.30.
Þriðjudaginn 20.september kl 17.30.
Fulltrúar frá aðildarfélögum LÆF geta sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu.
Skráning á námskeiðið fer fram á youth@youth.is eða í síma 561-1100 fyrir föstudaginn 9.september.2011.
Ekki láta þetta einstaka tækifæri fram hjá þér fara!





