Ný aðildarfélög hjá LÆF
föstudagur 22.júlí 2011

Á síðasta Sambandsþingi LÆF sem haldið var í maí öðluðust tvö ný félög aðild að LÆF. Það eru Ungmennadeild Blóðgjafafélags Íslands og Breytendur. Endilega smellið á nöfn félaganna til þess að kynna ykkur starfsemi þeirra.
LÆF fagnar þessari viðbót og hlakka til samstarfs við félögin.





