Okkar ár - okkar rödd
fimmtudagur 12.ágúst 2010

Í dag er alþjóðlegur dagur ungs fólks haldin hátíðlegur víða um heim. Það eru Sameinuðu þjóðirnar sem
standa fyrir deginum en hann er ætlaður til að vekja athygli á málefnum ungs fólks í heiminum og hlutverki þeirra í samfélögum
okkar. Í dag er þó ekki eingöngu haldið upp á daginn heldur er hann upphaf alþjóðlegs árs ungs fólks sem mun standa yfir til 12.
ágúst 2011.
Slagorð ársins er Okkar ár- okkar rödd og er markmið þess að veita þátttöku ungs fólks, í héraði,
á landsvísu og á alþjóðavísu löngu þarfa athygli og leggja áherslu á að ungt fólk fá tækifæri til
þátttöku í samfélaginu hvort sem er heima í héraði eða á alþjóðavísu. Í ályktun
alsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlegt ár ungs fólks kemur fram að mikilvægt sé að hvetja ungt fólk til
þátttöku í efnahagslegri, félagslegri og menningar þróun og eflingu sameiginleg skilnings milli manna á heiminum. Þetta kristallast
í orðum framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, að gefa eigi ungu fólki virkt hlutverk í ákvörðunartökum
á öllum stigum.
Í tilefni af árinu verða haldnir ýmsir viðburðir víða um heim sem hvetja til aukinnar þátttöku ungs fólks í
samfélaginu. Lögð verður áhersla á að ráðamenn í sveitafélögum, á landsvísu og á
alþjóðavísu opin aðgang ungs fólks að ákvarðanatöku og veiti þeim aukin tækifæri til þátttöku í
samfélögum sínum.
Nánar er hægt að lesa um alþjóðlegt ár ungs fólks á vefslóðinni social.un.org/youthyear. Þar má finna lista yfir
viðburði og verkefni tengdu árinu og lesa frekar um tilurð og markmið ársins.





