Æskulýðsgáttin

æska.is

Fréttir

Sambandsþing 2010

Þann 18. maí s.l. hélt LÆF árlegt sambandsþing sitt. Þingið var nokkuð vel sótt en 19 fulltrúar frá 11 félögum voru viðstödd. Megin umræðuefni þingsins var að samþykkja stefnu félagsins auk þess að ræða um skilgreiningu á æskulýðsfélögum. Góð umræða fór fram um þessi málefni. Einnig var kosið til stjórnar. Fimm fulltrúar buðu sig fram í 7 embætti. Formaður, varaformaður og gjaldkeri voru endurkjörin og tveir nýjir fulltrúar þau Björn Guðmundsson og Steinunn Kristjánsdóttir voru kjörin í stjórn, Björn sem alþjóðafulltrúi og Steinunn sem varamaður. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin í stjórn félagsins.  Fljótlega verður hægt að lesa fundargerð þingsins hér á síðunni en fundargerðir sambandsþinga, fulltrúaráðsfunda og stjórnarfunda eru regluglega settar inn á síðuna aðildarfélögum til aflestrar. 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn