Æskulýðsgáttin

æska.is

Fréttir

Sambandsþing LÆF

Sambandsþing LÆF verður haldið þann 24. maí n.k. í Hinu húsinu og mun hefjast klukkan  17.00. Öll aðildarfélög eiga að hafa fengið boð á þingið. Á þinginu munu fara fram hefbundin þingstörf samkvæmt lögum LÆF. Hverju aðildarfélagi er heimilt að tilnefna þrjá fulltrúa á Sambandsþing. Tillögur sem óskast teknar fyrir á þingi þurfa að berast stjórn þremur vikum fyrir þingsetningu þ.e. í síðasta lagi 3.maí. Senda má tillögurnar í pósti á Landssamband æskulýðsfélaga, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík eða með tölvupósti á youth@youth.is. Aðildarfélög munu fá send þau gögn sem lögð verða fyrir þingið tveimur vikum fyrir þingsetningu.
Aðildarfélög skulu tilkynna fulltrúa sína til stjórnar fyrir 17. maí og skal skriflegt umboð frá formanni eða staðgengli hans fylgja. Félögum með áheyrnaraðild er heimilt að tilnefna þrjá fulltrúa á sambandsþing. Hafa þeir málfrelsi og tillögurétt á þingu. Þau félög líkt og félög með fulla aðild skulu tilkynna fulltrúa sína til stjórnar viku fyrir þing eða fyrir 17.maí og skal skriflegt umboð frá formanni eða staðgengli hans fylgja. Ef félög með áheyrnaraðild öðlast fulla aðild á þingi, fá fulltrúar þeirra samstundis atkvæðisrétt.
 
Skrifleg umboð frá félögum um fulltrúa á Sambandsþingi skulu send á youth@youth.is eða í pósti til Landssambands æskulýðsfélaga, pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn