Samstarfsfundur æskulýðsfélaga frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum.
þriðjudagur 05.apríl 2011
Landssamband æskulýðsfélaga er í forsvari fyrir samstarfsfund æskulýðsfélaga frá norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum
sem haldinn verður í Reykjavík dagana 7. og 8. April næstkomandi. Fundurinn er styrktur af Nordbuk og koma 20 fulltrúar frá 8 löndum til
Reykjavíkur. Á fundinum munu fundargestir fara yfir starfsemi sinna félaga undanfarið ár, farið verður yfir samstarfsfleti á vettvangi European Youth
Forum og endurnýjaður verður samstarfssamningur félaganna.
Stjórn LÆF telur þetta samstarf afar mikilvægt og lærdómsríkt fyrir starfsemi félagsins. Fulltrúar LÆF á fundinum
verða Kristín Tómasdóttir (framkvæmdarstjóri LÆF), Unnur Hjálmarsdóttir (formaður LÆF) og Stefán Rafn Sigurbjörnsson
(alþjóðafulltrúi LÆF) og hlakka þau til að taka þátt í fundinum.





