
LÆF hefur komið upp litlu bókasafni á skrifstofu sinni. Þar er að finna nokkrar bækur og skýrslu um ýmislegt sem viðkemur æskulýðsstarfi, félagasamtökum og ungu fólki almennt. Það er stefna LÆF að stækka bókasafnið og er því opið fyrir öllum hugmyndum um bækur í safnið.
Ýmist eru til eitt eða tvö eintök af bókunum í safninu. Þegar til eru tvö eintök er annað eintakið til útláns en hitt til lesturs á staðnum. Ef aðeins eitt eintak er til er það eingöngu til lestrar á staðnum.
Vilji menn fá lánaðar bækur komið þá endilega við á skrifstofunni á opnunartíma (mán-fim kl. 10:00-14:00). Einnig er hægt að hafa samband við framkvæmdastjóra á youth@youth.is ef opnunartími hentar ekki!
Bókalista má finna hér.





