Æskulýðsgáttin

æska.is

Peningatré

Lög

Lög Landssambands æskulýðsfélaga
 
I. KAFLI
Nafn og aðsetur

1.gr.
Nafn samtakanna er Landssamband æskulýðsfélaga skammstafað LÆF. Á ensku heita samtökin The Icelandic Youth Council og á frönsku Le Conceil de la jeunessa Islandaise. Aðsetur og varnarþing er í Reykjavík.

II. KAFLI
Hlutverk og markmið

2.gr.
LÆF er samstarfs- og samráðsvettvangur frjálsra æskulýðsfélaga. LÆF starfar sjálfstætt og ber að hafna öllum þrýstingi, hvort sem hann er af pólitískum, trúarlegum eða efnahagslegum toga. LÆF vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum frjálsra æskulýðsfélaga og er málsvari þeirra gagnvart opinberum aðilum. LÆF vinnur að því að efla æskulýðsstarf og æskulýðsumræðu á Íslandi og er fulltrúi aðildarfélaga í margvíslegu erlendu samstarfi. LÆF veitir aðildarfélögum ekki samkeppni í þeirra starfi, en framkvæmir samkvæmt vilja þeirra.

3.gr.
Markmið LÆF eru eftirfarandi:
a) Að efla samstarf og miðlun upplýsinga meðal aðildarfélaga.
b) Að veita aðildarfélögum upplýsingar um æskulýðsstarf og málefni er varða ungt fólk, bæði á innlendum og erlendum vettvangi.
c) Að efla samskipti ungs fólks á Íslandi við ungt fólk um heim allan.
d) Að koma fram fyrir hönd aðildarfélaga þegar um sameiginleg hagsmunamál þeirra er að ræða.
e) Að vera málsvari aðildarfélaga gagnvart alþjóðlegum stofnunum og samtökum þegar þess er þörf.
f) Að vera í fararbroddi æskulýðsumræðu á Íslandi.
g) Að stuðla að og vera í fararbroddi í æskulýðsrannsóknum á Íslandi

III. KAFLI
Aðildarfélög

4.gr.
Fulla aðild að LÆF geta fengið þau æskulýðsfélög sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) Eru viðurkennd landssamtök æskulýðsfólks, eða starfa fyrir ungt fólk.
b) Eru lýðræðisleg, frjáls og sjálfstætt starfandi félög.
c) Meginþungi starfseminnar er æskulýðsstarf fyrir börn og ungt fólk og málefni þeirra.
d) Félög geta ekki verið með tvöfalda aðild, þ.e. verið aðildarfélag LÆF en einnig aðildarfélag annars félags sem líka er aðildarfélag LÆF.
e) Ef æskulýðsstarfið er hluti af víðtækari starfssemi þarf aðildarfélagið að vera sérstök æskulýðsdeild sem er með sjálfstæða ákvarðanatöku í eigin málum frá meginfélaginu.
f) Mismuna ekki fólki vegna kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, aldurs eða stöðu.
g) Starfa vilja samkvæmt lögum þessum.

Æskulýðsfélög sem starfa á vegum opinberra stofnana geta fengið áheyrnaraðild. Félög sem hafa áheyrnaraðild hafa fullan aðgang að félaginu en hafa ekki atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum eða sambandsþingi og geta ekki átt fulltrúa í framkvæmdastjórn. Félögum með áheyrnaraðild ber að greiða árgjald til félagsins og hafa vilja til að starfa samkvæmt lögum þessum.

5.gr.
Til þess að fá aðild að LÆF þurfa umsækjendur að skila skriflegri umsókn til stjórnar ásamt lögum félagsins og starfslýsingu. Telji stjórn að umsækjandi uppfylli aðildarskilyrði fær hann áheyrnaraðild. Umsókn skal síðan lögð fyrir sambandsþing og öðlast umsækjandi fulla aðild með staðfestingu þingsins. Telji stjórn að umsækjandi uppfylli ekki aðildarskilyrði getur fulltrúaráð veitt honum áheyrnaraðild gegn yfirlýsingu um að umsækjandi áformi að aðlaga sig að skilyrðum eins og þau koma fram í 4. gr. þessara laga.

6.gr.
Að loknum aðalfundum sínum skulu aðildarfélög senda LÆF starfs- eða ársskýrslu sína, lagabreytingar og upplýsingar um stjórn.
 
7.gr.
Tilkynning um úrsögn aðildarfélags skal berast skriflega til stjórnar. Eftir afgreiðslu hennar á sambandsþingi öðlast úrsögnin formlega gildi. Leggist aðildarfélag niður, fellur aðild þess að LÆF sjálfkrafa úr gildi.
 
8.gr.
Aðildarfélög LÆF hafa rétt til þess að taka þátt í starfi þess og að láta í ljós skoðanir sínar á öllum málum sem fjallað er um innan LÆF. Aðildarfélögin eru fullkomlega sjálfstæð og er LÆF ekki heimilt að hlutast til um starfsemi þeirra. Þó er LÆF heimilt að senda félögum erindi ef starfsemi félagsins brýtur gegn lögum þessum.

IV. KAFLI
Sambandsþing

9.gr.
Sambandsþing LÆF hefur úrskurðarvald í öllum málefnum sambandsins. Þingið skal koma saman fyrir lok maí ár hvert. Boða skal skriflega til þings með minnst 5 vikna fyrirvara. Stjórn fer með skipulag og undirbúning sambandsþings.
 
10.gr.
Tillögur sem óskast teknar fyrir á þingi, skulu hafa borist framkvæmdastjórn þremur vikum fyrir þingsetningu.
 
11.gr.
Eigi síðar en tveimur vikum fyrir þing skal senda aðildarfélögum dagskrá þingsins, reikninga, rekstaráætlun, lista yfir fulltrúa til setu í fulltrúaráði, tillögur sem borist hafa ásamt þeim tillögum sem stjórn og/eða fulltrúaráð hyggst leggja fyrir þingið.
 
12.gr.
Hverju aðildarfélagi er heimilt að tilnefna þrjá fulltrúa á sambandsþing. Aðildarfélög skulu tilkynna fulltrúa sína til stjórnar viku fyrir þing. Skal skriflegt umboð frá formanni eða staðgengli hans fylgja. Stjórn situr sambandsþing. Stjórnarmenn hafa ekki atkvæðisrétt og geta ekki setið sem fulltrúar sinna aðildarfélaga.
 
13.gr.
Félögum með áheyrnaraðild er heimilt að tilnefna þrjá fulltrúa á sambandsþing. Hafa þeir málfrelsi og tillögurétt. Félögin skulu tilkynna fulltrúa sína til stjórnar viku fyrir þing og skal skriflegt umboð frá formanni eða staðgengli hans fylgja. Ef félög með áheyrnaraðild öðlast fulla aðild á þingi, fá fulltrúar þeirra samstundis atkvæðisrétt.
 
14.gr.
Stjórn er heimilt að boða gesti á sambandsþing. Hafa þeir málfrelsi en hvorki tillögu- né atkvæðisrétt.
 
15.gr.
Atkvæðisrétt hafa einungis fulltrúar fullgildra aðildarfélaga. Félag telst fullgilt hafi það fulla sambandsaðild og skuldi ekki félagsgjöld til LÆF. Hver fulltrúi hefur eitt atkvæði. Ekkert aðildarfélag fer með fleiri en þrjú atkvæði.
 
16.gr.
Til að sambandsþing sé löglegt þurfa þingfulltrúar frá minnst þriðjungi aðildarfélaga að vera viðstaddir og löglega hafi verið til þess boðað samkvæmt 9. gr. þessara laga. Heimilt er að boða til auka sambandsþings og gilda sömu reglur um lögmæti þeirra og venjulegra sambandsþinga.

17.gr.
Í kjörbréfanefnd skulu kosnir þrír fulltrúar af þingi. Skal hún strax að kosningu sinni lokinni kanna kosningarétt þingfulltrúa.
 
18.gr.
Til þess að lagabreytingatillögur nái fram að ganga þarf 2/3 hluta atkvæða þeirra þingfulltrúa sem mættir eru. Í öðrum ákvörðunum nægir einfaldur meirihluti.
 
19.gr.
Dagskrá sambandsþings skal vera eftirfarandi:

1. Þingsetning og kosning þingforseta
2. Kosning þingritara og kjörbréfanefndar
3. Inntaka nýrra aðildarfélaga
4. Skýrsla stjórnar lögð fram til umræðu
5. Ársreikningar lagðir fram til umræðu og atkvæðagreiðslu
6. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun lögð fram til umræðu
7. Árgjald
8. Tillögur og ályktanir
9. Lagabreytingatillögur
10. Kynning á fulltrúum í fulltrúaráði
11. Kosning formanns, varaformanns, gjaldkera, ritara, alþjóðafulltrúa og tveggja varamanna
12. Kosning skoðunarmanna reikninga
13. Önnur mál

V. KAFLI
Fulltrúaráð

20.gr.
Hvert aðildarfélag skal skipa fulltrúa sinn í fulltrúaráð LÆF. Skal tilnefning hafa borist stjórn eigi síðar en þremur vikum fyrir sambandsþing. Nýskipað fulltrúaráð skal taka við á þingi og er starfstími þess eitt ár. Ef fulltrúi hættir á kjörtímabilinu skal annar fulltrúi sama félags taka sæti hans og skal stjórn viðkomandi félags tilkynna það stjórn LÆF. Hlutverk fulltrúaráðs er að efla samstarf milli aðildarfélaganna og vera tengiliður aðildarfélaga við LÆF.

21.gr.
Fulltrúaráð fer með æðsta vald í málefnum LÆF milli þinga og skal starfa í samráði við samþykktir síðasta þings. Fulltrúaráðsfundi skal halda að jafnaði á tveggja mánaða fresti eigi minna en ársfjórðungslega. Auka fulltrúaráðsfundur skal haldinn ef minnst fimm fulltrúaráðsmeðlimir fara fram á það. Stjórn situr fulltrúaráðsfundi með tillögu og atkvæðisrétt. Ef atkvæði innan fulltrúaráðs falla jöfn skal atkvæði formanns gilda tvöfalt. Formaður stjórnar er jafnframt formaður fulltrúaráðs.

22.gr.
Samþykktir Fulltrúaráðs skulu bornar undir sambandsþing til staðfestingar.

VI. KAFLI
Stjórn

23. gr.
Í stjórn skulu kosnir fimm aðalmenn og tveir varamenn, óháð deildum, til að fara með daglegan rekstur félagsins. Skulu þeir einstaklingar sem bjóða sig fram hafa tilkynnt framboð sitt til stjórnar minnst tveimur vikum fyrir sambandsþing. Stjórn samanstendur af formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera, alþjóðafulltrúa og tveimur varamönnum sem skulu sitja stjórnarfundi með málfrelsi- og tillögurétt en atkvæðisrétt í fjarveru aðalfulltrúa. Kjörgengi til stjórnar hafa allir félagsmenn fullgildra aðildarfélaga á aldrinum 18–35 ára.
 
24.gr.
Hvert félag sem er fullgildur aðili að LÆF getur einungis boðið fram einn fulltrúa til setu í stjórn.
 
25.gr.
Stjórn annast daglegan rekstur sambandsins svo sem almenna stjórnsýslu, fjármál o.s.frv. í samráði við ákvarðanir sambandsþings og fulltrúaráðs. Stjórn er heimilt að stofna vinnuhópa og nefndir sem starfa innan valdsviðs LÆF.
 
26.gr.
Miða skal við að stjórn komi saman minnst tvisvar í mánuði. Ef atkvæði innan stjórnar falla jöfn skal atkvæði formanns gilda tvöfalt. Ef fulltrúi í stjórn hættir á kjörtímabilinu, skal fulltrúi hans úr fulltrúaráði taka sæti hans. Félag hans skal þá velja nýjan fulltrúa til setu í fulltrúaráði.
 
27.gr.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar skal stjórn setja sér verk- og vinnulagsreglur. Skal aðildarfélögum veittur aðgangur að téðum reglum óski þau þess sérstaklega.
 
28.gr.
Stjórn er heimilt að ráða framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn til að annast daglegan rekstur skrifstofu LÆF eða önnur störf sem stjórn felur þeim. Ekki er heimilt að ráða stjórnarmeðlim sem framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri LÆF situr fundi stjórnar og hefur málfrelsi og tillögurétt en er án atkvæðisréttar.

29.gr.
Stjórn skal hafa frumkvæði að því að koma á samstarfi og auknum samskiptum milli aðildarfélaga, jafnvel í formi stofnunnar sérstakra undirdeilda eftir því sem við á hverju sinni.

VII. KAFLI
Fjármál

32.gr.
Reikningsár LÆF skal vera almanaksárið. Eigi síðar en tveim vikum fyrir sambandsþing skal senda aðildarfélögum ársreikninga sambandsins, og á sambandsþingi skal leggja þá fram til samþykktar. Einnig skal á þingi ákveða árgjöld aðildarfélaga.
 
33.gr.
Ársreikningar LÆF skulu skoðaðir af tveimur félagskjörnum skoðunarmönnum sem kosnir eru á sambandsþingi. Skoðunarmenn geta ekki setið í fulltrúaráði eða stjórn á sama tíma.

VIII. KAFLI
Sambandsslit

34.gr.
LÆF skal lagt niður ef meira en 2/3 aðildarfélaga krefjast þess á sambandsþingi. Skal þá skipa skiptanefnd sem í sitja sjö fulltrúar, þó aldrei fleiri en einn frá hverju aðildarfélagi. Skal nefndin annast frágang félagslegra og fjárhagslegra skuldbindinga.

IX. KAFLI
Lagabreytingar og gildistaka

35.gr.
Lagabreytingar skulu eingöngu eiga sér stað á sambandsþingi. Tillögur til lagabreytinga skulu berast til stjórnar, minnst þremur vikum fyrir þing. Lagabreytingatillögur eru sendar til aðildarfélaga ekki seinna en tveimur vikum fyrir þing. Lagabreytingar öðlast gildi ef a.m.k. 2/3 atkvæðabærra fulltrúa sem mæta á löglegt sambandsþing eru þeim samþykkir.
 
36.gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Lögum þessum var breytt á Sambandsþingi 2007, 2008 og 2009.

Auglýsingar

Menntamálaráðuneytið
Evrópa unga fólksins
European Youth Forum
Samfélagið Frumkvæði
Evrópska ungmennagáttin
Vinanet
Kompás

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn