Landssamband æskulýðsfélaga, LÆF, er heiti á regnhlífarsamtökum fyrir 22 æskulýðssamtök á Íslandi. Aðildarfélög eru frjáls félagasamtök sem starfa á landsvísu og vinna að hagsmunum og heill barna og ungmenna.
HlutverkLandssambands æskulýðsfélaga er:
-að vera fulltrúi og málsvari ungs fólks gagnvart íslenskum
stjórnvöldum.
-að vera samráðs- og samstarfsvettvangur fyrir íslensk æskulýðsfélög.
-að vera fulltrúar íslenskra ungmenna í ýmsu erlendu samstarfi.
-að vera í forystu í umræðu um æskulýðsmál.
Gildi Landssambands æskulýðsfélaga:
Þátttaka ungs fólks í uppbyggingu lýðræðis er einn mikilvægasti
hornsteinninn í starfi Landssambands æskulýðsfélaga. Ungt fólk á að hafa jöfn tækifæri til þess að hafa áhrif
á og móta framtíðina. Til þess að það geti orðið að veruleika þarf að auka þátttöku og hlut ungs
fólks í ákvarðanatökum og umræðu um mikilvæg málefni. Landssamband æskulýðsfélaga hyggst vera í forystu um
þessi mál með bjartari framtíð íslenskrar æsku að leiðarljósi.
Fjölbreytni og samheldni eru undirstöðugildi alls æskulýðsstarfs. Landssamband æskulýðsfélaga telur að víðsýni sé mikilvægur þáttur í farsælu samfélagi og leggur því ríka áherslu á baráttu við fordóma. Jafnframt vinnur það að því að auka jafnræði á öllum sviðum starfsemi aðildarfélaga sinna. Landssamband æskulýðsfélaga mismunar ekki og mun aldrei mismuna einstaklingum á grunvelli kyns, trúarbragða, kynhneigðar, þjóðernis, litarháttar eða fötlunar.
Uppbygging Landssambands æskulýðsfélaga:
Æðsta vald í málefnum Landssambands
æskulýðsfélaga er sambandsþing. Sambandsþingið skipa fulltrúar aðildarfélaganna auk stjórnar Landssambands
æskulýðsfélaga og á hvert félag samkvæmt núgildandi lögum rétt á þremur fulltrúum til setu á
þinginu.
Á Sambandsþingi er kjörin fimm manna framkvæmdastjórn. Í framkvæmdastjórninni eru því formaður, varaformaður, ritari,
gjaldkeri og alþjóðafulltrúi. Framkvæmdastjórn getur skipað vinnuhópa um ýmis málefni og/eða nefndir sem starfa þá
á milli Sambandsþinga að ákveðnum málum.
Markmið Landssambands æskulýðsfélega í samskiptum við hið opinbera er:
-að vera tengiliður milli stjórnvalda og æskulýðsfélaga.
-að vera tilnefningaraðili fulltrúa ungs fólks í nefndir, ráð og umræðuhópa um æskulýðsmál á vegum hins
opinbera.
-að upplýsa æskulýðsfélög um breytingar og þróun í stefnu stjórnvalda.
-að vera stjórnvöldum innan handar og til ráðgjafar um málefni íslenskrar æsku.
Stærsti hluti fjármögnunar Landssambands æskulýðsfélaga hefur komið frá opinberum aðilum, síðast af fjárlögum undir
safnliðnum Æskulýðsmál og þar á undan með stuðningi frá Æskulýðsráði ríkisins og
Menntamálaráðuneytinu. Reikna má með að rúmlega 90% af tekjum Landssambands æskulýðsfélaga komi frá opinberum aðilum
auk aðildargjalda félaganna. Þrátt fyrir að meginhluti tekna komi frá hinu opinbera er alveg skýrt að Landssamband æskulýðsfélaga
er frjáls og óháður félagsskapur.






