Æskulýðsgáttin
Sambandsþing
Sambandsþing Landssambands Æskulýðsfélaga  verður haldið 23. maí 2012 Klukkan 17:30 í Hinu
Húsinu Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík
Boðað hefur verið til Sambandsþings Landssambands æskulýðsfélaga þannb23.maí 2012 kl 17.30 í Hinu Húsinu. Dagskrá fundarins
verðureftirfarandi samkvæmt 19.gr laga félagsins:
Þingsetning og kosning þingforseta
Kosning þingritara og kjörbréfanefndar
Inntaka nýrra aðildarfélaga
Skýrsla stjórnar lögð fram til umræðu
Ársreikningar lagðir fram til umræðu og atkvæðagreiðslu
Fjárhags- og framkvæmdaáætlun lögð fram til umræðu
Árgjald
Tillögur og ályktanir
Lagabreytingatillögur
Kynning á fulltrúum í fulltrúaráði
Kosning formanns, varaformanns, gjaldkera, ritara, alþjóðafulltrúa og tveggja varamanna
Kosning skoðunarmanna reikninga
Önnur mál
Hverju aðildarfélagi er heimilt að tilnefna þrjá fulltrúa á
Sambandsþing. Aðildarfélög skulu tilkynna fulltrúa sína til stjórnar
viku fyrir þing þ.e. fyrir 16.maí 2012. Skal skriflegt umboð frá
formanni eða staðgengli hans skal fylgja.
Félögum með áheyrnaraðild er heimilt að tilnefna þrjá fulltrúa á
sambandsþing. Hafa þeir málfrelsi og tillögurétt. Félögin skulu
tilkynna fulltrúa sína til stjórnar viku fyrir þing þ.e. fyrir
16.maí 2012 og skal skriflegt umboð frá formanni eða staðgengli hans
fylgja. Ef félög með áheyrnaraðild öðlast fulla aðild á þingi, fá
fulltrúar þeirra samstundis atkvæðisrétt.
Skrifleg umboð frá félögum um fulltrúa á Sambandsþingi skulu send á
youth@youth.is eða í pósti til Landssambands æskulýðsfélaga,
pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík.
Sindri Snær varaformaður LÆF mun flytja erindi í Evrópustofu á kynningu um lýðræðisþátttöku ungs fólks í Evrópu
Evrópu
Tilkynning af vef Evrópustofu:
Lýðræðisþátttaka ungs fólks
Evrópustofa býður til kynningarfundar um lýðræðisþátttöku ungs fólks í gegnum æskulýðsfélög
í Evrópustofu, Suðurgötu 10, Reykjavík, fimmtudaginn 29. mars frá kl. 16-17:30.
Á fundinum deila Bryndís Torfadóttir, Ragnar Þorvarðarson, Sindri Snær Einarsson og Una Guðlaug Sveinsdóttir reynslu sinni af nýafstaðinni
fræðsluferð til Brussel um lýðræðisþátttöku ungs fólks í gegnum æskulýðsfélög (Active Citizenship
sóttu 40 æskulýðsfulltrúar frá þeim löndum sem sótt hafa um aðild að Evrópusambandinu.
Bryndís Torfadóttir er formaður Félags ungra jafnréttissinna.  Hún mun kynna nokkur af vandamálum tengdum jafnréttismálum í
Evrópu og hvaða tækifæri Evrópusambandið hefur að bjóða fólki og félagasamtökum sem hafa vilja til að bæta úr
þeim.
Ragnar situr í stjórn AFS á Íslandi. Hann mun kynna Evrópusamstarf AFS skiptinemasamtakanna, regnhlífasamtökin EFIL og samstarf við ESB í
ungmennaskiptum.
Sindri Snær er varformaður Landssambands æskulýðsfélaga. Hann mun fjalla um hagsmunabaráttu ungs fólks í Evrópu ásamt
því að kynna Evrópusamstarf LÆF og starf European Youth Forum sem er Regnhlífarsamtökum landssamtaka æskulýðsfélaga og
Alþjóðlegra æskulýðsfélaga sem starfa í Evrópu.
Una Guðlaug er formaður vinnuhóps um lýðræðisþátttöku ungmenna á vegum Bandalags íslenskra skáta. Hún mun fjalla um
upplifun sína af ferðinni og tengja hana við verkefni sem hópurinn starfar að.
Evrópa unga fólksins
Þá munu fulltrúar frá Evrópu unga fólksins (e. Youth in Action) einnig kynna starf sitt og möguleika í styrkjum og samstarfi en
áætlunin veitir styrki fyrir ungt fólk á aldrinum 13-30 ára og þá sem starfa með ungu fólki. Á hverju ári veitir skrifstofan
á Íslandi um 1.100.000 evrur í styrki til góðra verkefna.
Vonumst til að sjá sem flesta á fimmtudaginn!
Námskeið í bókhaldi fyrir félagasamtök
fyrirhugað á fimmtudaginn næsta, 22. mars 2012, og vonumst við til þess að sjá sem flesta.
Námskeiðið er að venju haldið í Hinu Húsinu klukkan 17:30 og að sinni er það Einar Ólafsson, löggiltur endurskoðandi hjá
KPMG, sem fer yfir það helsta sem viðkemur bókhaldi félagasamtaka. Námskeiðið er kjörið
fyrir gjaldkera félagasamtaka en er opið fyrir hvern þann sem hefur áhuga á.
Skráning berist á youth@youth.is
Jólaviðburður LÆF
félagsins í Hinu Húsinu. Boðið verður uppá léttar jólaveitingar. Við vonumst til þess að sjá ykkur sem flest!
Fulltrúaráðsfundur 29.nóvember.2011
Landssamband æskulýðsfélaga auglýsir 2. fulltrúaráðsfund vetrarins þann 29.nóvember.2011 kl 17.30. Á dagskrá er:
a. Upplýsingagjöf varðandi starfsemi félagsins sem af er starfsári og áform um verkefni á nýju ári.
b. Kynning á nýjum starfsmanni LÆF.
c. Umræður um laganefnd LÆF.
Endilega tilkynnið um hvaða fulltrúi kemur á fundinn frá ykkar aðildarfélagi á netfangið youth@youth.is eða í síma 6624292.